© 2026 Alma Med Ísland. Allur réttur áskilinn.

Samþætt ultrasound- og radiofrequency (RF) orka vinnur á markvissan og stjórnaðan hátt á dýpri lögum húðar og undirliggjandi fituvef. Með nákvæmri hitastýringu kemst orkan niður í dermis og subcutis þar sem hún örvar lífeðlisfræðileg viðbrögð í vefjum. Ultrasound-tæknin beinist að fituvefnum og stuðlar að niðurbroti fitufrumna með sértækri orkuafhendingu, á meðan RF-orkan hitar bandvef og örvar fibroblasta til aukinnar framleiðslu á kollageni og elastíni.
RF plasma tæknin er tvíþætt og miðar að því að örva kollagen- og elastínframleiðslu á svæðinu með náttúrulegum hætti. Microplasma neistar skadda ysta lag húðar (e. ablative effect) án þess að valda varanlegum skaða eða öramyndun. Þetta virkjar viðgerðarferli húðarinnar og örvar endurnýjun hennar. Á sama tíma er radiofrequency tækni notuð til að beina hita niður í undirlag húðarinnar (e. thermal effect) sem örvar kollagen- og elastínþræði og styrkir bandvef húðarinnar.
Tæknin er sérstaklega hönnuð fyrir klínískar aðstæður þar sem þörf er á öruggum, fyrirsjáanlegum og endurtekningarhæfum árangri. Hún hentar vel til meðferðar á staðbundinni fitu, slappleika í húð og aldurstengdum breytingum. Samþætt verkun á djúpum og yfirborðslegum húðlögum gerir lausnina fjölhæfa með breiðu notkunarsviði og sterkt rekstrarlegt gildi sem arðbær viðbót við þjónustuframboð.
Meðferðin styrkir samkeppnisstöðu klíníka með því að bæta við eftirsóttum, ekki-ífarandi lausnum sem svara skýrri markaðsþörf. Hún skapar nýja tekjustoð án þess að flækja rekstur, þar sem meðferðartími er hagkvæmur og auðvelt er að samþætta hana í núverandi tímabókanir.
Tæknin styður við skalanleika; sama búnaður getur sinnt fjölbreyttum ábendingum og meðferðarsvæðum, sem hámarkar nýtingu tækisins og eykur arðsemi fjárfestingar. Með stuttum meðferðartíma og lágmarks niðurtíma fyrir viðskiptavini eykst afkastageta á dag, sem hefur bein áhrif á tekjur.
Fyrir klíníkur sem vilja aðgreina sig á samkeppnismarkaði býður meðferðin upp á sýnilegan árangur sem auðvelt er að markaðssetja. Hún styður bæði minni og stærri rekstrareiningar og gerir mögulegt að byggja upp endurteknar komur og langtímasambönd við viðskiptavini.

Sjáðu lausnina í notkun og fáðu skýra mynd af arðsemi og möguleikum fyrir þína klíník.