Um fyrirtækið ALMA MED

ALMA MED er heildverslun með lyf og lækningavörur á sviði fegrunarlækninga. Markmið okkar er að bjóða fagaðilum í heilbrigðisgeiranum upp á fjölbreytt vöruúrval í hæsta gæðaflokki og veita viðskiptavinum okkar faglega og framúrskarandi þjónustu.

Fyrirtækið var stofnað vegna skorts á framboði af fylliefnum (e. hyaluronic acid fillers) á Íslandi. Að vandlega ígrunduðu máli var dreifing á vörum frá hinu ört vaxandi vörumerki Neauvia Organic hafin sumarið 2016. Neauvia Organic býður upp á mikið úrval fylliefna sem eiga það sameiginlegt að vera afar hrein og endingargóð, auk húðvörulínu sem hefur græðandi og bólgueyðandi eiginleika.

Stuttu síðar hóf ALMA MED dreifingu á lækningatækjum frá alþjóðlega lasertækjaframleiðandanum Alma Lasers, sem er í fremstu röð á sviði lasertækni til fegrunar- og skurðlækninga.

Nýjasta viðbótin eru svo vörur frá ítalska fyrirtækinu Love Cosmedical, sem framleiðir vörur ætlaðar til líkamsmótunar.

Vörumerki

Af hverju Alma Med?

Vottuð tækni

Lausnir frá viðurkenndum
framleiðendum með klínískan grunn.

Faglegur stuðningur

Ráðgjöf og innleiðing
sem styðja við örugga notkun.

Sannaður árangur

Tækni sem skilar
mælanlegum árangri í rekstri.

Tilbúin(n) að taka
næsta skref?

Sjáðu lausnina í notkun og fáðu skýra mynd af arðsemi og möguleikum fyrir þína klíník.