© 2026 Alma Med Ísland. Allur réttur áskilinn.

Lasertæki sem hentar einkar vel til háreyðingar á stórum meðferðarsvæðum og gerir það að verkum, sökum mikillar þekju (4 cm2), að hægt er að framkvæma háreyðingarmeðferðir á mun styttri tíma en áður hefur þekkst. Einnig er hægt að hafa tvö handstykki tengd við tækið á sama tíma, sem eykur sveigjanleika og kemur í veg fyrir að tíma sé eytt í að skipta um handstykki á meðan á meðferð stendur.
Tækið býr yfir afar öflugum kælibúnaði sem gerir það að verkum að háreyðing er nær alveg sársaukalaus og einstaklega örugg.
Notendaviðmót er einfalt og hannað fyrir klíníska notkun, með forstilltum meðferðarhamum sem lágmarka þjálfunartíma starfsfólks. Samþætt kælikerfi tryggir þægindi sjúklinga á meðan meðferð stendur og styður við jákvæða upplifun.
Tækið er CE-vottað og hannað fyrir áreiðanlega langtímanotkun í faglegu klínósku umhverfi.
Styttri meðferðartími eykur afkastagetu og tekjur á dag. Hentar vel fyrir meðferðarstofur með mikla eftirspurn eftir varanlegri háreyðingu eða stofur sem vilja auka afkasta getur sína.

Sjáðu lausnina í notkun og fáðu skýra mynd af arðsemi og möguleikum fyrir þína klíník.