Hreinasta fyllingarefnið á markaðnum

Neauvia Fyllingarefni

Neauvia fyllingarefni eru búnar til úr hreinustu og öruggustu hráefnunum á markaðnum í dag.

Neauvia nota PEG fjölliðu (e. PEG polymer), í stað BDDE sem víxltengingarefni (e. crosslinkingagent) sem hefur ekki verið notuð áður við gerð húðfyllingarefni. PEG fjölliðan skilur nær engin eiturefni eftir í líkamanum, ólíkt BDDE fjölliðinu.

Öruggari húðfyllingarefni með nýrri tækni

Neauvia vörurnar er búnar til úr hreinustu og öruggustu hráefnunum á markaðnum. Í stað þess að nota BDDE sem víxltengingarefni (e. crosslinking agent) nota framleiðendur Neauvia PEG fjölliðu (e. PEG polymer), sem ekki hefur verið notuð áður við gerð húðfyllingarefna. Ólíkt BDDE skilur hún nær engin eiturefni eftir í líkamanum (BDDE skilur eftir sig u.þ.b. 30x meira magn af eiturefnum), auk þess sem auðvelt er fyrir lifrina að brjóta hana niður.

Víxltengingarefni lengja tímann sem húðfyllingarefni haldast í líkamanum, en vegna eituráhrifa víxltengingarefnisins BDDE eru húðfyllingarefni talin öruggari því minna sem magn þess er. Með notkun Neauvia, þar sem BDDE hefur verið skipt út fyrir PEG fjölliðu, þarf hins vegar ekki að velja á milli öryggis og árangurs.

Við gerð Neauvia húðfyllingarefnanna er notuð svokölluð IPN (Interpenetrating Polymer Network) tækni, en hún felst í því að sameina tvær ólíkar tegundir af fjölliðum. Þessi tækni er ekki notuð við gerð annarra húðfyllingarefna, þar sem víxltengingarefni annarra sambærilegra vara á markaðnum eru ekki fjölliður. Þökk sé þessu ferli hafa Neauvia vörurnar fullkomna seigju (e. rheology) sem gerir það að verkum að það er auðveldara að móta þær, auk þess sem þær eru þolnari fyrir þrýstingi og hita en aðrar sambærilegar vörur á markaðnum.

Vörur

Tilbúin(n) að taka
næsta skref?

Sjáðu lausnina í notkun og fáðu skýra mynd af arðsemi og möguleikum fyrir þína klíník.